Sláturkjeppurinn 2008
Já þetta var bara sérdeilis næs og er ég sérstaklega hissa á góðri mætingu. Brennan var svakaleg og ég var æðislegur, við þökkum Jóa og Rósu fyrir góðar móttökur sem og ævinlega.Núna er þetta orðin flökkuhátíð og spennandi að vita hvar næsti sláturkjeppur verður haldinn að tveim árum liðnum. Það náttúrulega veltur á mér eða Friðrik að hósta næst.
Þið voruð að tala um myndir, ég tók þónokkrar mínútur af hreyfimyndum þegar atburðirnir áttu sér stað. En myndatakan er misléleg þar sem að rökkva var farið að taka þegar hún hófst.
Reyndar var doldið vandræðalegt þegar Einar og Trausti stungu af án þess að kveðja mig, Friðrik og okkar föruneyti en það hlýtur að vera vegna þess að við erum núna frá Stokkseyri. En við verðum bara að sætta okkur við það.
En allavega ég þakka fyrir mig og mína og við sjáumst hress á nýja árinu.
Kveðja Gummi Byrgis
09. ágúst 2008 klukkan 00:14
Kjeppur
Kjeppur
Ţegiđu!