17mars

Í formi í engu dormi!

Halló halló!!!

Hef að bjóða ótrúlegt tilboð en það hljóðar svo:

Árskort í sporthúsið (þrekhúsið, baðhúsið, betrunarhúsið ofl.) á 29900 kall!  Venjulegt kort kostar 45000 kr.  Hægt er að fá þetta á raðgreiðslum eða þá að staðgreiða.  Gjöf en ekki gjald bara fyrir þig my friend!  Einnig hafa stéttarfélög verið að greiða niður verð á líkamsræktarkortum og með því má fá hluta af verðinu endurgreitt.  

Ástæðan fyrir því að ég er að auglýsa þetta er sú að þetta er hluti af fjáröflun fyrir körfuknattleiksdeild Breiðabliks og ekki veitir af peningunum í það.  Gott væri ef fólk sæi sér fært að áframsenda þennan póst því að þetta er í boði fyrir þá sem vilja.

Trausti Jóhannsson
traustijo@btnet.is
8658770


Ég sendi Emaila á slatta af fólki en það er náttúrulega ekki allir sem fá svona mail þannig að ég vona að þið sjáið þetta hér.

Kóngurinn

17. mars 2007 klukkan 00:51
Kjeppur
3 athugasemdir
15mars

St.Patty's baby!!

Já á laugardaginn er St.patricks day. Þá er er skylda, já skylda að fara í eitthvað grænt og skola niður nokkrum köldum.

Every one is a bit irish on 17th of march

st.pattys baby
15. mars 2007 klukkan 22:50
Kjeppur
5 athugasemdir
10mars

Tvífarar vikunnar...

...eru Lalli mágur í ÍSBYGG...


...og Ned Flanders úr The Simpsons.

NEd

-TJ-
10. mars 2007 klukkan 20:46
Kjeppur
9 athugasemdir
05mars

Eitt sem að angrar mig

Þar sem að ég hef heyrt því fleygt að ég eigi það til að vera mjög jákvæður þá ákvað ég að minnast á eitt sem að ég þoli mjög illa og er mjög neikvæður gagnvart. Það mætti jafnvel taka svo sterkt til orða að ég þoli þetta bara alls ekki!
blink 182

Það er: Ógeðis háskóla rokkbönd. Ég virkilega þoli ekki svona bévítans ógeð eins og til dæmis hljómsveitir eins og Blink 182 og Hoobastank leika. Því miður virðast útvarpstöðvar ,eins og x-ið til dæmis, halda að  þetta sé rokk og það sé lífverum bjóðandi að hlusta á þetta. Nei aldeilis ekki þetta er endemis ógeð og hávaði.

Oddur ILLI
05. mars 2007 klukkan 23:08
Kjeppur
6 athugasemdir
05mars

↑ 929 ↑

Ójá! Ég er glaður sem steinn í dag.. (og reyndar föstudaginn og laugardaginn líka)

Nú má vera að einhver ykkar séu að spyrja ykkur sjálf.. "Hversvegna skildi Einar vera svona glaður.. "

Ég skal segja ykkur það... Nei annars, ég sýni ykkur bara. Sagt er að ljósmynd segji meira ein 1000 orð.

Honda CBR 929

Þetta ↑↑↑↑↑↑↑↑ er ástæðan fyrir gleðinni..

mmkay ?

Kv. Einar Kind
05. mars 2007 klukkan 00:00
Kjeppur
11 athugasemdir
04mars

...

http://b2.is/?sida=tengill&id=220823


kv Gummi
04. mars 2007 klukkan 20:51
Kjeppur
3 athugasemdir
01mars

Þar sem er reykur er einnig.....



Kv. Bikerboi
01. mars 2007 klukkan 22:45
Kjeppur
6 athugasemdir
26febrúar

Enn stærra skref...

Ég, Trausti Eitur-Pési, og Einsi Bikerboy hófum fyrsta skrefið í að upgradea okkur um helgina þegar við sátum bóklegt námskeið í bifhjólaakstri. Næsta skref er að sækja um að taka bóklegt próf og er Bikerboy búinn að því en EiturPésinn á það eftir. Bóklegaprófið verður tekið og síðan er það næsta skref að tala við ökukennarann og fara að stunda verklegu tímana sem eru að lágmarki 11 tímar. Eftir það er próf og allt klárt. Þetta kostar náttúrulega ógeðslega mikið en við teljum að þetta sé algjörlega þess virði.

Honda Shadow

Eitt sem hefur vakið athygli mína á þessu námskeiði og einnig skotvopnanámskeiðinu að það er alltaf einhver sem veit betur en allir hinir. Þar með talinn kennarinn. Það klikkar bara ekki, veit að mörg ykkar kannast við þetta. Það var einn svona gaur á þessu námskeiði um helgina. Honum þótti ekki leiðinlegt að deila með öllum sem sátu námskeiðið hversu klár hann væri, hvernig hjól hann væri búinn að kaupa sér og hvernig hjól hann hefði keyrt og naut þess að "leiðrétta" kennarann ítrekað með einhverju useless information kjaftæði. Þess má geta að 66 manns sátu námskeiðið og hugsa ég að flestir þeirra hafa fílað þennan gaur jafnvel og ég. Hann komst fyrst í stuð á sunnudeginum þegar farið var yfir próf. Prófið var sett upp á skjávarpann og tilgangurinn að allir myndu fara yfir það með kennaranum og pælt væri í afhverju hlutirnir væru réttir og rangir. En nei gaurinn leyfði okkur það ekki. Hann svaraði öllum spurningunum um leið og hún bar á góma. Þegar hann var beðin um að hætta þessu þá svaraði hann: "Ég kann öll svörin, ég var að gera þetta próf í gær á netinu!" Dísess, hugsaði ég. Ég vissi líka öll svörin eða svona flest þeirra eins og sennilega langflestir aðrir þarna. En þetta var þó ekki nóg til að þagga niður í honum. Ég var alvarlega að hugsa um að skrifa niður númerið hans og hringja svo í hann og segja að það væri hætt við þetta allt saman.

Svo eru líka alltaf önnur týpa á þessum námskeiðum og það er blessaða konan. Þær eru alltaf svo áhugasamar og ábyrgar að þær þurfa alltaf að spyrja. Já alveg sama hvað. Þær voru reyndar mun verri í skotveiðinámskeiðinu! Hvað þíðir .308 kaliber? Afhverju er það stærra en .222? Hverju breytir það? Hvort er betra að elta rollur á crossara eða edúruhjóli? Þær eru svo indælar.

-TJ-
26. febrúar 2007 klukkan 23:17
Kjeppur
4 athugasemdir
25febrúar

Stórt skref í rétta átt.

Kæru Kjeppir,

Nú eru stórir hlutir að gerast í lífi okkar Gunnzúnar og reyndar okkar allra ef að við spáum í því. Í dag fórum við Gunnzan í Húsgangahöllina og hittum þar notalegan ungann mann sem að leyfði okkur að njóta unaðar sem að við höfðum hvorugt prófað mikið áður. Við prófuðum mikið og margt spáðum og spekúleruðum en að lokum komumst við að þeirri niðurstöðu sem að var óhjákvæmileg. Við keyptum hann. Ekki unga manninn.. heldur La-z-yboy stólinn. Hann er prýðilegur stóll sem að á eflaust eftir að láta okkur líða ljómandi vel.

Hann heitir Dreamline og er með nuddi og hita sem að maður stillir með rafmagnsfjarstýringu. Þetta kvikindi kostaði á tilboði nettar 75.000 krónur en raunverð hans fyrir það var 109.000 krónur. Við munum fá hann afhentann á morgun.
Því viljum við bjóða Kjeppunum til okkar í heimsókn í Engihjallann að skoða gripinn.
25. febrúar 2007 klukkan 19:19
Kjeppur
7 athugasemdir
22febrúar

Herbalife bætir og kætir...

http://www.youtube.com/watch?v=tYk-X1ttkbI

Mér þótt eiginlega bara vænt um þetta fólk við að horfa á þau, kannski vorkun en tja...

-TJ-
22. febrúar 2007 klukkan 16:17
Kjeppur
2 athugasemdir

Undirsíðukubbur

Auglýsing

Kjeppskilaboð

Kjeppirnir kjeppa svo kjeppum sé kippt að kippa kjeppum til kappa

Leit

Könnun

...

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...