27apríl

Auglýsingar

Ég hef mikið pælt í auglýsingum í vetur, sérstaklega lélegum auglýsingum.  Þetta fékk sérstaka meðferð í bústaðarferðinni um daginn þar sem páskasól fór hæst í þeirri umræðu.  Páskasól er samt eitthvað sem fer í taugarnar á manni en maður veit hvenær maður á von á henni en það er á páskunum.  Óþolandi er hún þrátt fyrir það.  Ég er samt búinn að setja saman topp 5 verstu og leiðinlegustu auglýsingar í útvarpi og sjónvarpi.

5.  Herra Hafnarfjörður.  Hef bara heyrt þær í útvarpi sem betur fer og vona ég að Gunni og strákarnir fari nú ekki að setja þetta í sjónvarpið.

4.  Avant.  (Seðill, seðill auglýsingarnar).  Persónulega hef ég lúmskt gaman að þessum auglýsingum en ég veit að Freyr og fleiri myndu ekki fyrirgefa mér ef ég hefði ekki þessa á listanum.  Það er eins með þessa og páskasól að maður verður frigging geðveikur á að raula lagið.

3.  Páskasól verður að vera hérna líka.  Greyið er frekar óþolandi.  Maður fær á tilfinninguna að hérna sé einhver frekju krakkinn á ferðinni sem stoltu foreldarnir hafa troðið inn í auglýsingarbransann og eru að deyja úr stolti þó svo að allir aðrir séu að drepast úr leiðindinum. 
paskasol

2.  Efstu tvo sætin eru eiginlega ástæðan fyrir því að ég fór í þessa pistlagerð því að þær eru svo óþolandi að ég skipti alltaf um stöð á útvarpinu í vinnunni þegar þær koma.  Allaveganna þá eru það Dominos pizzaauglýsingarnar sem hreppa annað sætið.  Bæði sjónvarps og útvarps.  Þær eru skelfilegar og ekki bætti það úr skák þegar helvítis dúkkan kom til sögunnar.
dom


1.  Þetta eru mest óþolandi auglýsingar sem gerðar hafa verið án alls vafa.  Gaurinn í þessum auglýsingum er án vafa laminn í hvert skipti sem hann fer meðal almennings enda á hann það skilið.  Ég er nú þegar búinn að reyna að senda honum miltisbrand í pósti en samt fær maður að heyra þessar auglýsingar og ekki skánaði það þegar þær fóru að birtast í sjónvarpinu.  Barabbabaramm þetta eru Kjarnafæði pepperoni auglýsingarnar, því að þær eru Kjarnafæði pepperoni.  
pep
-TJ-
27. apríl 2007 klukkan 20:04
Kjeppur
4 athugasemdir
22apríl

Best í heimi!

Jæja þá er maður orðinn 25 ára gamall og ekki langt síðan að maður var 15. Vill þakka allar velvildar kveðjurnar sem ég hef fengið og síðast en ekki síðst öllum þeim sem voru í sumarhúsinu í gær.

Eina gjöf hef ég fengið og er það eitthvað sem ég lengi hef óskað mér en það eru veiðivöðlur. Núna get ég vaðið skurði og vötn undir handarkrika án þess að finna fyrir því. Einar núna getum farið að koma heim með eitthvað af þessu sem við veiðum, þurfum ekki lengur að skilja þetta eftir á floti einhverstaðar.

Vöðlur

Þessa gjöf get ég náttúrulega þakkað henni Stínu minni en hún er best í heimi, alveg eins og Thule ;)

stine

-TJ-

22. apríl 2007 klukkan 16:33
Kjeppur
11 athugasemdir
20apríl

Brjálađir glćpamenn í eltingarleik

20. apríl 2007 klukkan 16:59
Kjeppur
1 athugasemd
16apríl

VĆNTANLEGT

                 HETJUR

             Hero
16. apríl 2007 klukkan 17:58
Kjeppur
2 athugasemdir
13apríl

Skinkuhorn

Skinkuhorn Brauð og kökur Skinkuhorn að hætti bakarameistarans (16stk) 1. bréf þurrger
2 1/2 dl mjólk
100gr smjörlíki
1 tsk sykur
1 tsk salt
~500gr hveiti
sesamfræ
skinkumyrja eða smurostur með skinku

Smjörlíkið brætt og mjólkin sett saman við 35°C
Hinum efnunum blandað saman við og allt hnoðað saman þar til það er slétt og samellt
Deiginu skipt í 2 hluta, sem flattir eru út í tvær kringlóttar kökur sem skipt er í 8 jafna þríhyrnta parta.
Vefðu hvern þríhyrning þétt saman frá breiðari endanum. Láttu hornin á smurða plötu.
Láttu hornin lyfa sér í c.a. 25 mín.
Penslaðu hornin með eggi og settu á þau sesamfræ.
Bakaðu hornin í miðju ofni við 250°C í 12 - 15 mín.


Þetta er það sem að verður í boði í eldhúsi Odds og Guðrúnar í kvöld. Þið, kæru Kjeppir, eruð velkomnir að koma og njóta góðra skinkuhorna með kaffibolla og ljúfu spjalli í Engihjallanum.
13. apríl 2007 klukkan 20:28
Kjeppur
2 athugasemdir
08apríl

Gleđilega Páska.

Kæru kjeppir og aðrið landsmenn, svosem og þeir sem ekki eru á landinu.

Gleðilega páskaGleðilega Páska


Hafið það gott. Kær kveðja fyrir hönd Kjeppanna.

Einar Kind
08. apríl 2007 klukkan 16:27
Kjeppur
3 athugasemdir
04apríl

..

And the videos have been saved!
04. apríl 2007 klukkan 22:14
Kjeppur
1 athugasemd
04apríl

Dýrt spaug

Þetta er meðal annars ein ástæðan fyrir því að hestafólk getur farið alveg gríðarlega í taugarnar á mér.!"#$%Y#$"!$"!#%$

Grrrrrrrrr

                                                               GFB
04. apríl 2007 klukkan 21:51
Kjeppur
3 athugasemdir
03apríl

Zoom frikking BOOM



Kominn með Teinið! 

Kv. Einar Kind
03. apríl 2007 klukkan 14:33
Kjeppur
3 athugasemdir
02apríl

Vildi bara deila ţessu međ ykkur

Godds
02. apríl 2007 klukkan 22:15
Kjeppur
3 athugasemdir

Undirsíđukubbur

Auglýsing

Kjeppskilabođ

Kjeppirnir kjeppa svo kjeppum sé kippt ađ kippa kjeppum til kappa

Leit

Könnun

...

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...